Mamma
Það á að jarðsetja hana mömmu mína í dag. Síðastliðin vika hefur að mestu snúist um það. Það er svo margt sem þarf að huga að. Ég ætlaði að byrja að vinna í dag en geri það auðvitað ekki.
Dauði mömmu hefur valdið mér bæði sorg og gleði. Sorgin er þarna en gleðin eða feginleikinn yfir að hún sé nú laus frá þjáningum sínum er þarna líka. Þessar tilfininngar eru þarna báðar. Ég hef varla fellt tár yfir dauða mömmu. SIgríður Margrét dóttir mín sagðist hafa fundist sorglegra að heimsækja hana og sjá hana líða og þjást en að heyra um andlát hennar og það er mikið til í því. Samt finn ég svo mikið til í hjartanu en get samt ekki grátið.
Ég var raunar búin að kveðja mömmu mína fyrir löngu þ.e. þá mömmu sem var. Sterku gáfuðu fallegu konuna sem var svo félagslynd og vinamörg. Hún gat allt nema flautað og saumað á saumvél. Hún var svo klár talaði reiprennandi dönsku, ensku og þýsku- las meira að segja með stúdentsefnum fyrir próf. Hún var alltaf svo fín í tauinu, hafði saumakonu sem saumaði á hana fötin. Ég var ósköp leið yfir því þegar ég var yngri að enginn sagði að ég væri lík henni. Það var alltaf sagt að ég væri öll í föðurættina..... Og í þá daga fannst mér það ekki alveg nógu gott.
Pabbi var sjómaður svo hún var við stjórn á heimilinu og þar var alltaf margt um manninn og gestkvæmt. Alltaf nógur matur ef fólk kom og svo má ekki gleyma fínu veislunum þegar dekkað var upp með sparistellinu og borin á borð rjómalöguð blómkálssúpa og ´lærisneiðar í raspi, smásteik eða e-ð þaðan af betra. Hún var svo félagslynd og átti vini á öllum aldri. Hún bjó að þessu eftir a ð hún veiktist þá voru margir sem héldu tryggð við hana og heimsóttu hana.
Td. vinnufélagar úr Ísl. heimilisiðnaði, Kvenfél. Hrönn, saumaklúbbnum, ferðaafélagar úr ýmsum ferðum utan lands og innan auk ættingja og ýmissa vina. VIð fjölskyldan færum þeim sem sýnduð henni tryggð og vináttu í veikindum hennar bestu þakkir. Sérstaklega vil ég þakka Andrési og Kiddý, Fríðu og Jóni, Adda og Lilju og Böggí, Dúdú og 'ottari en hún er nú sjálf orðin veik og komin á stofnun, Gerði Hjörleifs og co og Gunnu EInars og Hrannarkonum .
Elsku mamma mín er nú farin og eftir sitjum við börnin hennar og fjölskyldur okkar og minnumst hennar og þökkum fyrir að hafa fengið að vera samvistum við þessa góðu merku konu .

6 Comments:
Kæra Ingibjörg
MÓÐIR/MAMMA, þetta útbreidda heiti vekur miklar kenndir hjá flestu fólki. Móðurheitið er til í ýmsum ótrúlega líkum myndum um alla jörð. Moeder/ma er til í afríkönsku, moder/mor í dönsku, mutter í þýsku. Einungis þetta sýnir og sannar hve náin mamman og afkvæmið eru. Mamma er fyrsta orðið okkar flestra. Þegar mamma er farin er rofið skarð í varnarvegginn sem ætíð umlukti okkur. Mömmuskarðið verður ekki fyllt af neinum öðrum.
Ég samhryggist en skil um leið léttinn við að þurfa ekki að horfa á mömmuna sína breytast og hverfa smám saman.
Elín G.
Elsku nafna.
Sendum þér og þínum samúðarkveðjur.
Sat á fjölförnu horni í Latínuhverfinu í París og skálaði fyrir þér á upprisunni í B54( naf á kokteil) fannst það passa. Gæti kallast Bimba fimmtíu og eitthvað.
Kveðja frá Palla.
Nafna.
Elsku Bimba mín
Samhryggist innilega
Blómastelpan
samúðarkveðjur kæra Ingibjörg, hugsa til þín,
Kæra Ingibjörg!
Minningar er ekki hægt að kaupa, þær eru gjöf, .... dýrmæta gjöf hefur yndisleg móðir gefið þér.
Mínar innilegustu samúðarkveðjur
Ólöf Ragnarsdóttir
Kæra Ingibjörg!
Minningar er ekki hægt að kaupa, þær eru gjöf, .... dýrmæta gjöf hefur yndisleg móðir gefið þér.
Mínar innilegustu samúðarkveðjur
Ólöf Ragnarsdóttir
Post a Comment
<< Home