Bimba

Thursday, September 14, 2006

upprisuþankar

Ég var spurð um daginn hvort ég væri að keppa við Krist af því ég ætlaði að halda upprisuhátíð. Það var nú ekki meiningin - ég hafði ekki hugsað mér það. En upprisa er það þannig að ég er ekki eins illa á mig komin og áður en ég fór í fyrstu aðgerð og um það snýst málið. Margt - mjög margt- sem gengur betur þó það mætti auðvitað vera betra. T.d. eiga sumir erfitt með að tala eftir aðgerðina en það hef ég alveg sloppið við - ég get ímyndað mér að það hefði orðið algjört áfall fyrir mig ef ég hefði átt í erfiðleikum með að tjá mig. Alla vega finnst mér við hæfi að halda upp á svo margt. Ég vona bara að allt gangi vel. Ég veit ekkert hvað það koma margir- bara að það fari ekki úr böndunum en að öðru leyti hef ég ekki áhyggjur Ég þekki bara skemmtilegt fólk sem kann að skemmta sér svo þetta verður örugglega gaman. Það verða ýmis skemmtiatriði og húllum hæ . Ýmsir hæfileikaríkir vinir mínir ætla að troða upp svo það verður örugglega stöööð. Það skyggir að vísu´á að það er ýmsir góðir sem geta ekki komið en það er alltaf svoleiðis og það þýðir ekki að láta það ergja sig um of.
Nú er Einar Gylfi allur að ná sér eftir hjartaáfallið þó ekki megi hann við miklu. Hann tekur þetta föstum tökum og fer eftir leiðbeiningum. Hann má ekki vinna í 4 vikur svo nú erum við gömlu hjónin hérna bæði. M.a.o. ég ætla að byrja að vinna á Landakoti 1.okt. í hálfri stöðu. Það verður væntanlega gott að koma sér í gang aftur, vona að það gangi allt upp.
Jæja og Magni á leið heim svo nú þarf fólk ekki að vera vansvefta á miðviku- og fimmtudögum og þjóðin getur glaðst yfir sameiningu litlu fjölskyldunnar og að Magni þessi ljúfi sveitadrengur að austan lendi ekki í slagtogi við þessi dóphausa og voðamenni. Æ hvaða hvaða...... Þetta eru örugglega vænstu grey, bara orðnir svolítið útlifaðir. Hver er það ekki ef grannt er skoðað.
Sjáumst á upprisuhátíðinni!!

5 Comments:

At 2:48 AM, Anonymous Anonymous said...

já, en ekki er hann Leifur Eiríksson 99 ára á Hrafnistu útlifaður þrátt fyrir háan aldur.. flottur kallinn.. vildi bara fara með Kastljósinu "vestur" að hitta átrúnaðargoðið... en sendi lukkuspil í staðinn. Bíð spennt eftir loka þættinum "Leifur og Magni hittast"...
Bíð einnig spennt eftir upprisuhátíðinni og "kombakkinu" þínu á Landakot.
kv
BI

 
At 11:54 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég held nú bara Bimba mín að Kristur samgleðjist á upprisuhátíðum. Hann er dóltið í kærleikanum. Sem verður á þinni hátíð: Kærleikur, þakklæti og gleði. Akkúrat rétti andinn.
Voða þakklát fyrir að Magni bjargaðist frá frægðarAmeríkuhremmingum. Ýmsir hafa týnt sér þar.
Hlakka til hátíðar. Kveðja, Dóra

 
At 7:56 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ Bimba mín.
Hlakka til hátíðarinnar.
Sjáumst,
adda :-)

 
At 2:54 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég segi bara til hamingju með upprisuna. Mér virðist þú/þið hafa mikið til að halda upp á. Vona bara að þú haldir áfram að blogga eftir upprisuhátíðina. Ég er fastagestur á blogginu þínu, þó ég láti nú ekki alltaf vita af mér...
Bestu kveðjur,
Jóhanna Rósa

 
At 3:17 AM, Blogger bimba said...

Gott að heyra frá ykkur verst að þú ert víðs fjarri Jóhanna Rósa. þú sem ert svo tryggur lesandi bloggsins ættir að vera sérstakur heiðurgestur (þú lætur alltaf frá þér heyra reglulega og það er svo gaman)!!

 

Post a Comment

<< Home