ýmsir stórviðburðir
Nú er orðið langt síðan ég hef skrifað og það hefur ýmislegt gerst í millitíðinni.
Einar Gylfi afrekaði það að fá hjartaáfall. Það gerðist sl. sunnudag. Hann var búinn að vera e-ð slappur dagana áður en svo komu Atli sonur og Anna tengdó í sunnudagsheimsókn ásamt Sigrúnu ÁStu og sáu að ekki var allt með felldu. Þau drifu hann upp á bráðamóttöku og þar uppgötvaðist að ein kransæðin var algjörlega stífluð og hann var blásinn eins og það er kallað og losað um stífluna og settur einhver gormur inn til að halda æðinni opinni. Læknirinn sem sér um hann segir að Atli og Anna hafi brugðist hárrétt við og hann segir að þau hafi bjargað honum með að drífa hann uppeftir á spítalann á hárréttum tímapunkti. Já það er ekkert annað.
Einar ggylfi er enn slappur og er ennþá á hjartadeildinni en trúlega kemur hann heim í dag. Hann á að hafa hægt um sig í 4 vikur. Ég hugsaði með mér að best væri að setja þetta bara á bloggið svo það yrði ekki neinn misskilningur - VIÐ HÖLDUM OKKUR VIÐ UPPRISUHÁTÍÐINA NÚ VERÐUR HÚN BARA TVÖFÖLD.
Sem sagt: Þann 22. september höldum við hátíð. Það verður í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi við Suðurströnd (við hliðina á sundlauginni). Hátíðin hefst kl 20.30. Þar munu ýmsir listamenn þekktir og minna þekktir troða upp og skemmta með söng og hljóðfæraleik frá ýmsum löndum.
Ég segi ekkert meira og hananú. Allir vinir og ættingjar eru velkomnir. Sjáumst.

2 Comments:
Hæ hæ
vildi bara segja "god bedring" einsog their segja herna i noregi, vonandi gengur allt vel.
knùs
Sisi i norge
Elskurnar mínar,
er með hugann hjá ykkur og vona að allt gangi vel. Er mjög spæld að vera fjarri góðu gamni á upprisuhátíðinni, hefði svo gjarnan viljað gleðjast með ykkur góðu hjón. Þið vitið að það er sagt að sól og hiti sé sérstaklega gott fyrir hjartað og þreytta kroppa, þið vitið hvar við erum! Knús og kossar frá okkur öllum í Valencia
Ykkar Sassa
Post a Comment
<< Home