Bimba

Wednesday, September 20, 2006

að halda upp á

Nú líður að hátíðinni miklu. Hátíð lífsins. Er þetta ekki soldið væmið.?! En það er alla vega verið að halda upp á lífið og tilveruna. Sumir hafa staðið í þeirri meiningu að þetta sé afmælisveisla en því fer fjarri þetta er rétt og slétt uppáhaldsveisla. SUm sé verið að halda upp á ........... þá eru engar gjafir eða svoleiðis bara koma og gefa nærveru sína jú það var þetta með púkkið það er auðvitað gjöf út af fyrir sig. Æi hvaða röfl er þetta nú nenni ég ekki að þvæla meira um þetta en þið skiljið hvað ég meina. Það er fullt af elskulegu fólki með hæfileika sem ætlar að troða upp - ó hvað það verður gaman. Ég er orðin svo spennt. VInkonur mínar Létturnar ætla að sjá um veitingar - alltaf eru þær eins þessar elskur. Það koma margir góðir gestir og sumir langt að þannig að þau verða aðfá e-ð í svanginn. Já það koma margir langt að t.d. koma gestir frá Danmörku og Noregi og Vestmannaeyjum.
Já nú er bara að hemja sig fram á föstudagskvöld.
Efeinhver les þetta sem þekkir mig og langar til að koma þá bara komdu.
Jæja -ég get ekki skrifað um neitt annað og hætti þessu hér með.

3 Comments:

At 12:50 PM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Ingeborg mikið svakalega væri nú gaman að koma til ykkar og samfagna en er full mikið ferðalag hjá okkur eins og staðan er í dag.
Hef ekki lengi kíkt inná síðuna hja þér var búin að týna henni i tölvufruskóginum svo við vissum ekkert um heilsuleisi Einars Gylfa en allt er gott sem endar vel og það er ótrúlega seigt í þessum Eyjapeyjum. Njótið ykkar í góðra vina hópi á upprisuhátíðinni, lífið er til að njóta þess og samferðafólksins .
Verðum með ykkur í anda .
Kærleikskveðjur og góðar óskir til ykkar beggja .
Eiríkur og Sigga núna í Litháen

 
At 1:01 PM, Anonymous Anonymous said...

Ja hérna það sem þið komið víða síðast þegar´ég heyrði frá ykkur voruð þið í Namibiu var það ekki. Það hefði nú ekki verið ónýtt að fá ykkur í upprisuveisluna en sjáumst síðar elskurnar. Eruð þið með blogg eða netfang. Ég meina sendið mér netfangið á ingibjorg@lifogsal.is

 
At 1:05 PM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Bimban mín, mikið hefði ég viljað koma og tjúttast með þér, en vinnan tók völdin um leið og ég kom heim frá Slóveníu svo ekki varð við ráðið. Látið ykkur líða eins vel og best getur orðið.
Sjáumst... Halla Blómastelpa :)

 

Post a Comment

<< Home