Daginn eftir............
Daginn eftir upprisuhátíðina lést hún mamma mín elskuleg. Það var kl 10.30 um morguninn að það var hringt og lát hennar tilkynnt. Hún dó södd lífdaga eftir langt og strangt veikindastríð.
Ég hefði bara viljað vera hjá henni þegar hún fór, mér finnst svo nöturlegt að ekkert okkar var hjá henni þegar hún kvaddi þennan heim. Að vísu voru tvær mjög ljúfar starfsstúlkur hjá henni en ég vildi samt óska að það hefði verið e-t okkar barna hennar. Okkur var tjáð að þeim hafi fundist eins og hún væri að skilja við um kl. 21.30 þ. 22. þegar veislan var í hámarki en svo var eins oghún hætti við það og hún beið með það þangað til veislan var búin og við búin að sofa út.
Hún hefur alltaf veriðsvo tillitssöm hún mamma mín elskuleg. Hún var farin að mestu frá okkur síðustu vikurnar en nú er hún alveg farin og nú sakna ég hennar. Hún var alltaf svo blíð og góð og öllum sem þekktu hana fannst svo vænt um hana end var hún mjög vinamörg og vel liðin hvar sem hún fór. Guð blessi minningu hennar.

8 Comments:
Kæra Ingibjörg og fjsk. Það er skammt stórra högga á milli hjá ykkur, Ég fékk tárin í augun þegar ég las um lát mömmu. Það snertir strengi - enginn er eins og mamma.
Innileg samúðarkveðja,
Elín G.
Innileg samúðarhveðja til þín, og ykkar allra elsku Bimba mín,það er skammt milli hláturs og gráturs, en svona er nú lífið einu sinni. Kær hveðja.Hrönn Har..
samhryggist innilega.
Votta þér samúð mína,innilega kæra Ingibjörg.Mömmur okkar eru okkur svo mikið,þó við séum orðnar stórar stelpur.Kær kveðja Katrín sem var á L3 (dadý)og PS samherji. Ég les alltaf bloggið þitt.
Elsku Ingibjörg.
Takk fyrir frábært kvöld.
Ég samhryggist þér innilega v. mömmu þinnar, dauðinn er alltaf svo ótrúlega endanlegur alveg sama þó viðkomandi hafi þráð að fá að fara og allir í rauninni sáttir við það. Reyni að senda þér góða strauma.
kv. Gulla.
Elsku Ingibjörg og fjölsk.
Okkar dýpstu samúðarkveðjur frá okkur.
Alltaf erfitt að missa sitt fólk hefur ekkert með skynsemi að gera. Mamma á alltaf sitt hólf í hjarta hvers og eins.
Sendum það besta við kunnum til ykkar yfir hafið.
Eiríkur og Sigga
Elsku Bimba mín
Samhryggist.
Því þrátt fyrir langvarandi veikindi,og maður hafi óskað þess að mamma manns fengi frið og lausn, þá er hjá okkur sem erum eftir, svo mikið tómarúm, svo mikill kafli í lífinu sem er farinn og búinn.
Heimsóknir, klapp á hendina,þessi vissa um skilyrðislausu ástina sem við fengum frá mæðrum okkar. Búið og sárt.
Kveðja, Dóra
Elsku Bimba, ég ætlaði nú að þakka fyrir frábært kvöld en sá svo þessar fréttir.
Við vottum þér og fjölskyldu þinni samúð okkar, mömmur eru bestar og því er þetta alltaf svo sárt.
Hugsum til ykkar.
Jóhanna Ýr og Halldór
Post a Comment
<< Home