upprisuhátíð
Hér með kemur fyrsta tilkynning um upprisuhátíðina. Eins og málin líta út núna verður hún haldin 22.sept. sem er föstudagur í félagsheimili Seltjarnarness. Þetta er þakkarhátíð fyrir vini og ættingja og alla velgjörðarmenn mína. Þar verður eitt og annað skemmtilegt á dagskrá og svo verður bara yndislegt að hitta ykkur öll. Heyrið nánar síðar en takið daginn frá. Látið þetta berast til þeirra sem málið varðar sum sé allra vina minna.

6 Comments:
Kæra vinkona.
Ég bíð ekki boðanna og skrái mig hér með á gestalistann og nú tekur við "taumlaus tilhlökkun" eins og Vézý segir. Hlakka til að hitta þig 12. sept á Léttsveitaræfingu
kær kveðja María Ólafs
sæl
gaman að heyra.. strax farin að hlakka til!!
heyrðu..?? á ég að hengja upp tilkynningu í lyftunni? ..hehehhe
bestu kveðjur af Kotinu
BI
Til Berglindar
Ég ætla að koma og hitta ykkur á mánudaginn. Nú er ég að spá í að fara að vinna og vera eins og annað fólk og ætla að´ræða við Rósu um það allt.
Svo hlakka ég bara til að sjá ykkur María og Berglind við þurfum að finna góða staði til að hengja upp tilkynningar. Kærlig hilen Bimba
Mikið finnst mér æðislegt að þú skulir vera að hressast svona mikið að sláir til "trukka"veislu.
Sjáumst, allavega 12.sept
Elsku Bimba.
Gott að heyra að heilsan sé á uppleið. Við hjónin verðum í París þennan dag en við verðum með þér í anda og munum skála fyrir þér þetta kvöld.
Læt þig vita hvar það var gert þegar við komum til baka.
Kveðja,
Bogga og Palli.
Elsku Bogga og Palli
takk fyrir kveðjuna. Vonandi skemmtið þið ykkur vel í París. Við hittumst síðar hress og kát.
Bestu kveðjur frá Bimbu
Post a Comment
<< Home