Bimba

Tuesday, August 29, 2006

brúðkaup og upprisuhátíð

Það mætti halda að Lundúnaferðin hefði tekið svo á mig að ég væri hætt að blogga. En nei þið sleppið ekki svona vel.
Hjalti og Linda giftu sig á föstudaginn. Það var mjög fín og einföld borgaraleg athöfn sem fór fram heima hjá Guðrúnu mömmu Hjalta að viðstöddum öllum foreldrum og systkinum. Ungu hjónin voru alveg sérstaklega sæt og glæsileg. Á eftur var svo haldin geysifjölmenn veisla í Garðaholti minnir mig það heiti og þar var etið og drukkið fram eftir kvöldi. Það var mjög gaman . Mest gaman er að kynnast unga fólkinu í kringum krakkana og skemmta sér með þeim. Ég fílaði svo vel að skemmta mér með Sigríði M., Pétri og Gunnari tengdó og þau virtust bara ánægð með gamla settið. Það var ekstra skemmtilegt að öll systkini Gylfa voru þana og öll börnin hans og það er sko enginn smá hópur. Nú er "brudeparret" farið aftur til Dk. og líka Pési. Ég keyrði hann á flugvöllinn í gær.
Nú er ég aftur farin að spekúrlera hvort ég eigi ekki að kýla á "upprisuhátíð" og halda upp á bætta heilsu þó hún sé ekki alvegg eins og hún gæti verið best. Ég er alla vega miklu betri en ég ég var áður en ég fór í fyrstu aðgerð´þó ekki sé ég jafn góð og eftir hana þá er óhætt að segja að ég hafi náð mun betri heilsu. Hvað segja lesendur um þetta? Ég er búin að fá nokkra músíkkanta til að hjálpa mér að gera þetta skemmtilegt og nú vantar bara hús og dagsetningu
og svo mætti ég grennast um svona 15 kg svo ég geti tjúttað almennilega. Ég hugsa málið og þið líka. Allir sem ég þekki verða velkomnir.

3 Comments:

At 5:07 AM, Anonymous baun said...

þarftu ekki einmitt að tjútta og tjútta svo meira til að missa kílóin 15?

(frekar en að missa kílóin og tjútta svo. maður tjúttar aldrei of mikið að mínu mati og jafnvel aldrei nógu mikið)

 
At 8:12 AM, Blogger bimba said...

Hæ láttu það ganga á Reykjalundi til velunnara minna að þið eruð öll velkomin á upprisuhátíðina sem að öllum líkindum verður laugardaginn 23.sept. heyrið nánar síðar. Þar verða ýmis skemmtiatriði og dans. OG þá verður tjúttað. Þetta verður í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi . Þetta er ekki alveg frágengið em ég vildi samt undirbúa jarðveginn.
Gaman að heyra frá þér

 
At 4:05 AM, Blogger vésí beib said...

eine ver-ge-ent-be-ab-wunderbare zchnilld, taumlaus tilhlakk!

 

Post a Comment

<< Home